Starfshópur um kyngreind tölfræðigögn
Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði 3. júní 2020 starfshóp um kyngreind tölfræðigögn með það að markmiði að bæta yfirsýn yfir kyngreind tölfræðigögn og stuðla að því að söfnun og notkun á kyngreindum tölfræðigögnum hjá opinberumaðilum verði gerð með sambærilegum hætti. Skipun hópsins er í samræmi við fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 þar sem lögð er áhersla á aðgerðir til að bæta að gengi að kyngreindum tölfræðigögnum. Auk þess er fjallað um viðfangsefni hópsins í framkvæmdaáætlun um jafnréttismál 2020-2023.
- Marta Birna Baldursdóttir, formaður, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti
- Katrín Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti
- Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, tilnefnd af Stafrænu Íslandi
- Herdís Sólborg Haraldsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti
- Guðjón Hauksson, tilnefndur af Hagstofu Íslands
- Hlynur Hallgrímsson, tilnefndur af Reykjavíkurborg
- Tryggvi Hallgrímsson, tilnefndur af Jafnréttisstofu
Hópurinn vinnur nú að kortlagningu á stöðunni og greiningu á úrbótatækifærum og gerir ráð fyrir að skila stöðuskýrslu um mitt ár 2021. Í framhaldi mun hópurinn vinna að gerð handbókar og/eða annars fræðsluefnis.