C.03. Grænt og snjallt Ísland
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Kjartan Ingvarsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Fréttir
13.02.23 Verkefnastjóri snjallra og grænna verkefna
Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir starf verkefnastjóra í styrkjasókn í þágu íslenskra sveitarfélaga í evrópska sjóði á sviði umhverfis-, loftslags- og stafrænna mála.
Verkefnið
Markmið: Að nýttar verði snjallar og grænar lausnir til að efla atvinnulíf og samfélag.
Stutt lýsing: Unnið verði í víðtæku samstarfi að framtíðarsýn fyrir Ísland sem einkennist af sjálfbærni, jöfnum tækifærum og samstarfi um verkefni sem nýta snjallar og grænar lausnir til að efla atvinnulíf og samfélag. Skilgreind verði lykilverkefni og grænar fjárfestingar sem nauðsynlegt er að ráðast í til þess að markmiðið um Grænt og snjallt Ísland (GOS) verði að veruleika. Í tengslum við GOS verði sett á fót samstarfsteymi sem m.a. sam¬hæfir sókn í fjármagn, þ.m.t. í ESB-sjóði.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Samband íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við teymi sem stofnað verður.
- Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, Ís¬lands¬stofa, Byggðastofnun, Verkefnastofa um stafrænt Ísland og háskólar.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Aðgerðaáætlun um eflingu stafrænnar þjónustu, fram¬tíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar, stefna í málefnum sveitarfélaga, orku¬stefna, nýsköpunarstefna og klasastefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 7, 9, 12 og 13, einkum undirmarkmið 7.2, 7.3, 9.5, 12.2, 12.5, 12.8 og 13.2.
- Tillaga að fjármögnun: 5 millj. kr. af byggðaáætlun.